Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2015 | 23:45

Afmæliskylfingur dagsins: Valdís Þóra Jónsdóttir – 4. desember 2015

Það er Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2012 – Valdís Þóra Jónsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Hún er fædd 4. desember 1989 og á því 26 ára afmæli í dag. Valdís tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í höggleik á Hellu með lokapúttinu og samtals skori upp á 13 yfir pari, 293 höggum (71 75 72 75) í lok júlí 2012. Golf 1 tók viðtal við Valdísi Þóru fyrir lokadag mótsins sem rifja má upp með því að SMELLA HÉR: 

Valdís Þóra slær upphafshöggið á Íslandsmótinu í höggleik 2012. Mynd: Golf 1

Valdís Þóra slær upphafshöggið á Íslandsmótinu í höggleik 2012. Mynd: Golf 1

Valdís Þóra hefir m.a. verið klúbbmeistari Golfklúbbsins Leynis í mörg undanfarandi ár.

Valdís Þóra er í afrekshóp GSÍ völdum af Úlfari Jónssyni, landsliðsþjálfara. Hún spilaði golf með golfliði Texas State í bandaríska háskólagolfinu, en þaðan útskrifaðist hún 2012.

Valdís Þóra þátt í HM kvennalandsliða áhugamanna í Tyrklandi í september 2012.

Sumarið 2014 og í ár spilaði Valdís Þóra á Eimskipsmótaröðinni og LET Access.

Í þessum mánuði hefur Valdís Þóra síðan leik á Lalla Aicha Q-school LET (Ladies European Tour) sem fram fer í Marokkó.

Sjá má eldra viðtal, sem Golf1 tók við Valdísi Þóru SMELLIÐ HÉR:

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

1-a-Valdís

Valdís Þóra Jónsdóttir (26 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pam Higgins, 4. desember 1945 (70 ára stórafmæli!!!); Mary Bea Porter-King, 4. desember 1949 (66 ára); Björn T Hauksson (59 ára);  Costantino Rocca, 4. desember 1956 (59 ára); Wesley Earl Short, Jr., 4. desember 1963 (51 ára); Jósep Þorbjörnsson (49 ára);  Brynja Herborg Jonsd. (37 ára); Bergur Dan Gunnarsson (29 ára); Petrea Sigmundsdóttir, 4. desember 1989 (26 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is