Steinunn Sæmundsdóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Sæmundsdóttir – 28. nóvember 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Sæmundsdóttir, GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi í flokki 50+ 2010 og 2011 sem og Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ með sveit eldri kvenna í GR, þ.e. 2011, 2012 og 2013.

Sigursveitir GR í 1. flokki eldri kylfinga - Steinunn er í fremri röð lengst til vinstri

Sigursveitir GR í 1. flokki eldri kylfinga – Steinunn er í fremri röð lengst til vinstri

Steinunn fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1960. Hún byrjaði í golfi 14 ára og gekk í GR 1974. Aðaldriffjöðurin í golfleiknum var bróðir Steinunnar, Óskar en hún dró oft fyrir hann. Jafnhliða fjölda Íslandsmeistaratitla í golfi og klúbbmeistaratitla hjá GR er afmæliskylfingurinn okkar 12-faldur Íslandsmeistari á skíðum. Í dag er Steinunn með 5,5 í forgjöf.

Steinunn er 4 barna móðir þeirra Sæunnar Ágústu 32 ára; Hlyns Heiðars, 32 ára; Söndru Rós, 19 ára og Sigrúnar Ásu 15 ára. Eins á Steinunn 4 barnabörn: þá Hlyn Viðar 6 ára og Henrik Viðar 5 ára, Jóhannes Viðar 8 ára og Steinunni Lilju 6 ára.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Steinunni með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Steinunn Sæmundsdóttir, GR. Mynd: Í einkaeigu

Steinunn Sæmundsdóttir
55 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Dick Rhyan, 28. nóvember 1934 (81 árs); Atli Þór Þorvaldsson, 28. nóvember 1963 (52 ára)David Ecob, 28. nóvember 1965 (50 ára stórafmæli); Anna Rún Sigurrósardóttir, GO, f. 28. nóvember 1968 – d. 1. febrúar 2014 (47 ára); Evan Droop, 28. nóvember 1970 (45 ára); Vaughn Groenewald, 28. nóvember 1974 (spilar á Sólskinstúrnum, 41 árs) og Angela Stanford f. 28. nóvember 1977 (38 ára); Sveinn Orri Snæland, GR, 28. nóvember 1981 (34 ára).

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is