Eimskipsmótaröðin: Miklar breytingar fyrirhugaðar
Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Starfshópur á vegum Golfsambandsins skilaði af sér tillögu um framtíðarsýn fyrir Eimskipsmótaröðina til næstu þriggja ára og var niðurstaða nefndarinnar kynnt á þingi Golfsambandsins (21. – 22. nóvember 2015 s.l.)
Tillöguna má sjá í heild sinni með því að SMELLA HÉR:
Með það fyrir augum að stækka mótaröðina og bæta umfang hennar, leggur starfshópurinn til margar breytingar. Sumar þessara breytinga kunna að fela í sér ákveðin fráhvörf frá núverandi fyrirkomulag á meðan aðrar tillögur fela eingöngu í sér skerpingu á því sem áður hefur verið gert.
Mótin á Eimskipsmótaröðinni verða alls átta en til samanburðar voru mótin sex á síðasta keppnistímabili. Á árinu 2016 verður sú undantekning að sex mót telja til stigameistaratitla á Eimskipsmótaröðinni en frá og með árinu 2017 munu alls átta mót telja á stigalistanum.
Keppnistímabil hvers árs hefst í lok ágúst og lýkur í sama mánuði, ári síðar.
Tímabilið hefst á tveimur mótum að hausti, því fylgja svo tvö mót að vori árið eftir og lýkur á fjórum mótum yfir hásumarið.
Fjöldi keppenda í haust- og vormótum, auk Íslandsmótsins í golfi, verður með sama sniði og í dag en færri keppendur verða í öðrum mótum.
Tvö ný mót bætast við mótaröðina. Þátttakendafjöldi í þeim verður takmarkaður mun hann taka mið af stöðu keppenda á heimslista atvinnu- og áhugamanna og stigalista GSÍ á hverjum tíma.
Golfklúbbur Reykjavíkur og Golfklúbburinn Keilir hafa báðir boðist til að skuldbinda sig til þess að vera með árleg mót á mótaröðinni næstu þrjú ár.
Hámarksforgjöf í mót á mótaröðinni verður 5,5 hjá körlum og 8,5 hjá konum. Skoðuð verður sú hugmynd að ljúka mótum á laugardegi og leika seinnipart fimmtudags og föstudags í þeim mótum þar sem keppendafjöldi er takmarkaður.
Fallið var frá þeirri tillögu að Íslandsmótið í golfi fari fram á höfuðborgarsvæðinu í fjögur skipti af fimm á hverju fimm ára tímabili.
Mót Tímabil Fjöldi keppenda
Eimskip 1 Ágúst 144
Eimskip 2 September 144
Eimskip 3 Maí 144
Eimskip 4 Maí/Júní 144
Íslandsmótið í holukeppni Júní 64 karlar – 24 konur
Eimskip 6 Júlí 36 karlar – 18 konur
Íslandsmótið í golfi Júlí 144
Eimskip 7 Ágúst 33 karlar – 15 konur
Hámarksforgjöf í mót á mótaröðinni verður 5,5 hjá körlum og 8,5 hjá konum. Skoðuð verður sú hugmynd að ljúka mótum á laugardegi og leika seinnipart fimmtudags og föstudags í þeim mótum þar sem keppendafjöldi er takmarkaður.
Keppnistímabilið 2016 verður með eftirfarandi hætti:
Mót Dagsetning
Eimskip 1 20.-22. maí
Eimskip 2 3.-5. júní
Íslandsmótið í holukeppni 16.-19. júní
Eimskip 4 15.-17. júlí
Íslandsmótið í golfi 21.-23. júlí
Eimskip 6 / Lokamót 19.-21. ágúst
Íslandsmótið í holukeppni
Hópurinn leggur til eftirfarandi breytingar á fyrirkomulagi mótsins.
a. Keppendur í karlaflokki verði 64 og raðast í 16 riðla.
b. Keppendur í kvennaflokki verði 24 og raðast í 8 riðla.
c. Íslandsmeistari í holukeppni fyrra árs, þrír efstu íslendingarnir á heimslista
atvinnumanna og þrír efstu kylfingarnir á heimslista áhugamanna eiga
þátttökurétt í mótinu. Á þetta bæði við karla- og kvennaflokk.
d. Að frátöldum þeim kylfingum sem eiga sjálfkrafa þátttökurétt skv. c.-lið
ræður staðan á stigalistanum talið frá og með síðasta Íslandsmóti í holukeppni.
e. Í stað stöðu leikmanna á stigalistanum ræður forgjöf þátttakenda því í
hvaða röð leikmenn raðast í riðla.
Sveitakeppni GSÍ færð fram á fjórðu helgina í júní
Sveitakeppni GSÍ er eitt af stærstu mótum sumarsins á hverju keppnistímabili. Mótið er feikilega vinsælt meðal keppenda. Það er einróma álit starfshópsins að auka megi veg þessarar keppni verulega og um leið auka áhuga bæði almennra kylfinga og fjölmiðla á mótinu.
Sú hefð hefur skapast að leikið sé í Sveitakeppni GSÍ aðra helgi í ágústmánuði. Það jákvæða vandamál hefur komið upp að sífellt fleiri íslenskir karlkylfingar hafa áunnið sér keppnisrétt í Evrópumóti einstaklinga á undanförnum misserum sem skarast á við Sveitakeppni GSÍ.
Lagt er til að gerðar verði eftirfarandi breytingar á Sveitakeppni GSÍ:
Nafni keppninnar verði breytt, gerðar verði breytingar á tímasetningu keppninnar og er lagt til að leikið verði í öllum deildum karla og kvenna fjórðu helgi júnímánaðar.
Sveitakeppni eldri kylfinga og unglinga fari fram aðra helgi ágústmánaðar. Kanna skal þann möguleika að undanúrslit og úrslit í efstu deildum karla og kvenna fari fram á sama velli. Það gefur golfáhugamönnum, klúbbfélögum, áhorfendum og fjölmiðlum betra tækifæri til að fylgjast með.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024


