Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2015 | 16:00

44 fyndnustu augnablik golfsins (42/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 3

Hversu hátt stökk Phil Mickelson þegar hann sökkti fuglapúttinu fyrir fyrsta risamótssigrinum á Masters risamótinu 2004? Svo hátt að hægt hefði verið að koma orðabók undir lappirnar á honum – nú kannski ekki  þykka Oxford orðabók en kannski stytta þynnri útgáfu af , Merriam-Webster’s. Það var minna íþróttamannslegt þegar Phil rann á rassinn árið 2013 á Pebble Beach … en það kitlaði kannski meira hláturtaugarnar hjá einhverjum – Sjá má myndskeið af atvikinu með því að SMELLA HÉR: