Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2015 | 13:00

PGA: Flores með frábæran örn!

Bandaríski kylfingurinn Martin Flores fékk frábæran örn á par-5 11. brautinni CC og Jackson í Mississippi, þar sem Sanderson Farms PGA mótið fer fram.

Örninn kom á 2. hring, en mótið hefir tafist vegna mikilla rigninga og á að reyna að ljúka mótinu, sem stytt hefir verið í 3. hringja mót, í dag.

Flores er T-19 í mótinu búinn að spila á 9 undir pari (67 72).

Sem stendur er efsti maður mótsins Roberto Castro á samtals 13 undir pari.

Sjá má flottan örn Flores með því að SMELLA HÉR: