Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2015 | 12:00

Sveinn Andri stigameistari stráka á Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2015

Það var Sveinn Andri Sigurpálsson, GM, sem varð stigameistari í strákaflokki á Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2015 og var heiðraður vegna þessa á Uppskeruhátið GSÍ 28. október 2015.

Efstir á stigalista Áskorendamótaraðar Íslandsbanka í strákaflokki urðu eftirfarandi:

Strákaflokkur, 14 ára og yngri:
1. Sveinn Andri Sigurpálsson, GM, 6037.50 stig.
2. Björn Viktor Viktorsson, GL, 5872.50 stig.
3. Bjarni Freyr Valgeirsson, GR, 4882.50 stig.

Á 1. mótinu, sem fram fór á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysunni varð Sveinn Andri í 2. sæti en Björn Viktor í 7. sæti og Bjarni Freyr  í 5. sæti.

Sigurvegarar í strákaflokki á 1. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015 á Kálfatjarnarvelli. Mynd: GSÍ

Sigurvegarar í strákaflokki á 1. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015 á Kálfatjarnarvelli. Mynd: GSÍ

Sveinn Andri var ekki með á 2. mótinu, sem fram fór á Svarfhólsvelli á Selfossi, Bjarni Freyr varð í 3. sæti og Björn Viktor í 7. sæti.

Sveinn Andri sigraði hins vegar síðan í tveimur mótum í röð, þ.e. í 3. og 4. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka.

Í 5. mótinu, sem fram fór á Glanna-velli varð Sveinn Andri í 4. sæti en Breki Arndal, GKG sigraði og Björn Viktor Viktorsson, GL varð í 2. sæti. Í 3. sætinu varð síðan Orri Snær Jónsson, NK.

Björn Viktor sigraði síðan á 6. og síðasta mótinu á Áskorendamótaröð Íslandsbanka, sem fram fór á Nesvelli.