Thelma Björt stigameistari telpna á Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2015
Thelma Björt Jónsdóttir, úr golfklúbbnum Keili var heiðruð á Uppskeruhátíð GSÍ, sem fram fór í Laugardalnum 28. október 2015 s.l. þar sem hún varð stigameistari telpna, 15-16 ára, á Áskorendamótaröð Íslandsbanka.
Efstu telpur á stigalista Áskorendamótaraðar Íslandsbanka voru eftirfarandi:
Telpnaflokkur, 15-16 ára:
1. Thelma Björt Jónsdóttir, GK, 4500.00 stig.
2. Andrea Nordquist Ragnarsdóttir, GR, 2400.00 stig.
3. Íris Mjöll Jóhannesdóttir, GKG, 1500.00 stig.
Thelma Björt sigraði í 3 fyrstu mótum Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015; þ.e. því fyrsta á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysunni; á 2. mótinu á Svarfhólsvelli á Selfossi og í því 3. á Kirkjubólsvelli í Sandgerði.

F.v.: Verðlaunahafar í telpnaflokki á 1. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015: f.v.: Andrea, GR í 2. sæti og Thelma Björt, GK sigurvegari og fulltrúi GSÍ. Mynd: GSÍ
Á fyrsta móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka, sem fram fór á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysunni sigraði Thelma Björt Jónsdóttir, GK, á 26 yfir pari, 98 höggum. Í 2. sæti varð 2 Andrea Nordquist Ragnarsdóttir GR á 34 yfir pari,

Thelma Björt Jónsdóttir, GK á 2. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015 á Svarfhólsvelli. Mynd: Golf 1
Thelma Björt sigraði á 2. mótinu á Áskorendamótaröð Íslandsbanka, sem fram fór á Svarfhólsvelli á Selfossi.

Andrea í 2. sæti, Thelma Björt sigurvegari 3. móts Áskorendamótaraðar Íslandsbanka og Guðmundur, framkvæmdastjóri GSG. Mynd: GSÍ
Á 3. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka, sem fram fór á Kirkjubólsvelli í Sandgerði sigraði Thelma Björt og Andrea, GR, varð í 2. sæti.
Enginn þátttakandi var í 4. og 5. móti í telpnaflokki á Áskorendamótaröð Íslandsbanka og er það miður því Áskorendamótaröðin er svo fínn keppnisvettvangur!
Íris Mjöll Jóhannesdóttir, GKG sigraði á 6. og síðasta móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka, sem fram fór á Nesvelli 5. september 2015. Thelma og Andrea tóku ekki þátt í mótinu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

