Korpan að hausti. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2015 | 07:00

GR: Ragnar Ólafsson og Einar Long sigruðu í Opna Nóvembermótinu

Það er ekki á hverjum degi sem haldið er opið mót hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í nóvembermánuði. Sú varð raunin sunnudaginn 8. nóvember 2015 þegar Opna Nóvembermót GR var haldið á Korpúlfsstaðavelli við frekar blautar aðstæður. Það voru 92 keppendur sem mættu til leiks og höfðu gaman að. Í tilefni dagsins var keppendum boðið upp á kaffi og kleinur.

Leikfyrirkomulag mótsins var punktakeppni og höggleikur. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og tvö efstu sætin í höggleik. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 holum vallarins.

Vinningshafar geta vitjað vinninga á skrifstofu GR að Korpúlfsstöðum frá og með deginum í dag, mánudeginum 9. nóvember. Skrifstofa GR er opin alla virka daga frá kl.9:00 til 16:00.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Punktakeppni:
1. Sæti: Ragnar Ólafsson GR 41 punktur
2. Sæti: Sigurjón Árni Ólafsson GR 39 punktar (20 á seinni 9)
3. Sæti: Tómas Eiríksson GR 39 punktar (19 á seinni 9)

Höggleikur:
1. Sæti: Einar Long GR 72 högg
2. Sæti: Hörður Sigurðsson GR 75 högg

Nándarverðlaun:
3.braut: Sigurður Ómar Ólafsson GKG – 1,49 metrar
6.braut: Þorkell H Diego GR – 14,8 cm
9.braut: Aðalsteinn Bragason GK – 1,57 metrar
13.braut: Erlingur Birgir Kjartansson GK – 67,5 cm
17.braut: Hörður Sigurðsson GR – 53 cm

Texti: GR