Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2015 | 12:00

Saga stigameistari stúlkna á Íslandsbankamótaröðinni 2015 og efnilegasti kvenkylfingur Íslands!

Saga Traustadóttir, GR, varð stigameistari stúlkna á Íslandsbankamótaröðinni og var heiðruð á Uppskeruhátíð GSÍ sem fram fór í s.l. viku, nánar tiltekið 28. október sl.  Saga sigraði tvívegis í stúlknaflokki en varð hvorki Íslandsmeistari í höggleik né holukeppni stúlkna. Það voru klúbbfélagar hennar Ragnhildur Kristinsdóttir (Íslandsmeistari í höggleik) og Eva Karen Björnsdóttir (Íslandsmeistari í holukeppni) sem náðu þeim titlum. Jafnframt varð Saga tvívegis í 2. sæti.

Á uppskeruhátíðinni var Saga jafnframt kosin efnilegasti kvenkylfingur Íslands.

Efstu kylfingar í stúlknaflokki 17-18 ára á stigalista Íslandsbankamótaraðarinnar voru eftirfarandi:

1. Saga Traustadóttir, GR, 8100.00 stig.
2. Eva Karen Björnsdóttir, GR, 6787.50 stig.
3. Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK, 6300.00 stig.

Saga er búin að eiga fínt golfsumar.  Á fyrsta móti Íslandsbankamótaraðarinnar sem fram fór á Garðavelli á Akranesi sigraði Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK.  Saga varð í 2. sæti og Eva Karen í 3. sæti.

Frá vinstri: Ragnar Ólafsson, Saga, Sigurlaug, Eva Karen og Hólmfríður Einarsdóttir markaðsstjóri Íslandsbanka. Mynd/Guðmundur Sigvaldason, Leynir:

Á 2. mótinu sem var Íslandsmótið í holukeppni varð Eva Karen Björnsdóttir Íslandsmeistari í holukeppni. Saga komst ekki á verðlaunapall en í 4 manna undanúrslitum bar Eva Karen sigurorð af Sigurlaugu Rún 4&3 og keppti síðan til úrslita við Hafdísi Öldu Jóhannsdóttur, GK. Sigurlaug tapaði viðureigninni um 3. sætið við Elísabetu Ágústsdóttur, GKG.

Eva Karen Björnsdóttir, GR, Íslandsmeistari í holukeppni stúlkna 2015 (f.m).. Mynd: Golf 1

Eva Karen Björnsdóttir, GR, Íslandsmeistari í holukeppni stúlkna 2015 (f.m).. Mynd: Golf 1

Saga sigraði á 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, sem fram fór á Húsatóftavelli – þar var Saga á samtals 3 yfir pari og átti heil 11 högg á næsta keppanda!!! Sigurlaug Rún, GK varð í 3. sæti, en Eva Karen tók ekki þátt í mótinu.

F.v.: Saga, Ragnhildur og Sigurlaug. Mynd:: GSÍ

F.v.: Saga, Ragnhildur og Sigurlaug. Mynd:: GSÍ

Á fjórða mótinu sem var Íslandsmótið í höggleik varð Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, Íslandsmeistari; Saga varð í 2. sæti; Sigurlaug í 3. sætinu og Eva Karen í 4. sæti.

Saga Traustadóttir, GR. sigurvegari á Hamarsvelli á 5. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2015 (f.m.) Mynd: gsimyndir.net

Saga Traustadóttir, GR. sigurvegari á Hamarsvelli á 5. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2015 (f.m.) Mynd: gsimyndir.net

Saga sigraði á 5. móti Íslandsbankamótaraðarinnar sem fram fór á Hamarsvelli í Borgarnesi. Þar spilaði hún á 14 yfir pari og átti heil 14 högg á næsta keppanda. Eva Karen varð í 4. sæti en Sigurlaug Rún tók ekki þátt í mótinu.

Verðlaunahafar í flokki 17-18 ára á 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 4.-6. september 2015. Mynd: golf.is

Verðlaunahafar í flokki 17-18 ára á 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 4.-6. september 2015. Mynd: golf.is

Á 6. og síðasta móti Íslandsbankamótaraðarinnar varð Saga í 2. sæti en í því móti sigraði Íslandsmeistarinn í holukeppni í stúlknaflokki Eva Karen Björnsdóttir, GR. Heimakonan Sigurlaug Rún varð í 3. sæti.

Skemmst er að minnast glæsiárangurs Sögu á European Ladies Club Trophy, en þar átti hún stóran þátt í því að sveit GR varð T-4 með glæsihring upp á 65 högg!!!