Viðtalið: Hörður Davíðsson – „Golfvöllurinn í Efri-Vík fer undir álfastíga og öskubirgi“
Frá árinu 1991 eða í 23 ár var starfræktur golfvöllur að Efri-Vík í Landbroti, sem er um 4 km frá Kirkjubæjarklaustri.
Það voru ábúendur Efri-Víkur, sem jafnframt eru eigendur Hótel Laka, Hörður Davíðsson og eiginkona hans Salóme Ragnarsdóttir og dóttir þeirra hjóna og fjölskylda hennar, Eva Björk Harðardóttir, sem ráku völlinn í tengslum við golfklúbbinn Laka, GLK.
Í Efri-Vík er auk Hótel Laka boðið upp á gistingu í sumarhúsum, alhliða veitingarekstur og veiðileyfi, auk annars spennandi tengdu ferðaþjónustu.
Efri-Víkurvöllur var hannaður af Hannesi Þorsteinssyni og var 9 holu, par 35/35 (par-70). Á gulum teigum var völlurinn 2399 m 66,2/106 en 1930 m 65,6/102 á rauðum.
Vegna veðursældar í Skaftárhreppi var hægt að spila á vellinum mikinn hluta ársins þó aðal starfsemin hafi þau 23 ár sem klúbburinn starfaði farið fram á tímabilinu maí – október.
Vallargjöld voru greidd á Hótel Laka þar var einnig hægt að leigja golfsett og kúlur.
Golfklúbburinn Laki stóð ávallt fyrir einu móti á ári: Hótel-Lakamótinu í byrjun september. Nú hefir klúbburinn hætt starfsemi og vellinum verið lokað, sem er miður.
Golf 1 tók stutt viðtal við eiganda Hótel Laka og golfvallarins, Hörð Davíðsson, um ástæðurnar fyrir lokun vallarins.
Golf 1: Eru einhverjar líkur á að þið opnið Efri-Víkur golfvöllinn aftur?
Hörður: Nei, við erum hætt með völlinn, við gáfumst upp.
Golf 1: Hverjar eru ástæðurnar fyrir því að völlurinn var lokaður?
Hörður: Völlurinn bar sig ekki – það þurfti að greiða of mikið með honum á hverju ári. Við fengum heldur engan stuðning neins staðar.
Golf 1: Það er eftirsjá af Hótel Laka mótinu ykkar – hvernig taka félagsmenn Golfklúbbsins Laka þessu?
Hörður: Málið var að fólk var ekki að koma langt að á mótið. Það var aðallega áhugafólk sem var hér, sem lagði hönd á plóginn með að halda félagsstarfi uppi, en það fluttist burt og það var ekki endurnýjun á því. – Þetta hefur bara æxlast þannig. Hingað hafa ekki fluttst golfáhugamenn. Við vorum orðin eyland.
Golf 1: Hvað gerist núna með Efri-Vikur golfvöllinn ykkar?
Hörður: Hann fer undir ferðatengda starfsemi fyrir hótelið.
Golf 1: Hvaða starfsemi þá?
Hörður: Við erum að útbúa svona gamlan 3 bursta torfbæ, sem verður á golfvellinum, með ýmsu sem honum fylgir og erum að skipuleggja fræðslustíg sem lendir inn á golfvellinum ásamt álfakirkju og álfasögum og fuglaskoðunarhúsi og gömlum mannvistarleifum ásamt öskubirgi.
Golf 1: Öskubirgi?
Hörður: Öskubirgið gróf ég inn í lítinn hól byggði yfir hann birgi. Þar er hægt að lesa gossöguna í 1000 ár – Það er gaman. Þetta er eldfjallasagan – goslögin svo skýr um allt land og hér er nóg af öskulögum.
Það er spennandi valkostur að heimsækja Efri-Vík og álfastíginn með álfakirkjunni og álfasögum og eins öskubirgið, sem er stórmerkilegt framtak eins manns, Harðar Davíðssonar. Þess mætti í blálokin geta að við Kirkjubæjarklaustur sjást oft dásamlega falleg norðurljós og vel þess virði að gista á Hótel Laka líka á veturnar vegna þess eins – og síðast en ekki síst vegna höfðinglegs hlaðréttarborðs, þar sem boðið var upp á ýmislegt nammilegt.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024




