Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2015 | 09:00

Sigurður Arnar sigraði á German Junior Golf Tour Championship í flokki 13 ára og yngri!!!

Það var Íslandsmeistarinn í höggleik og holukeppni í strákaflokki 2015, Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, sem stóð sig hreint með afbrigðum vel á þýsku unglingamóti, German Junior Golf Tour Championship.

Hann sigraði í gær 24. október 2015 í sínum aldursflokki 13 ára og yngri.  Stórglæsilegt hjá Sigurði Arnar!!!

Sigurður Arnar lék á samtals 28 yfir pari 316 höggum (80 76 81 79)

Mótið fór fram á Vesturvelli Berliner Golfclub Stolper Heide, í Þýskalandi, en völlurinn er gríðarlangur og erfiður, 6336 metra af hvítum teigum.

Sjá má lokastöðuna í flokki Sigurðar Arnars með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má frétt Stöðvar 2 þar um sigur Sigurðar Arnars með því að SMELLA HÉR: