Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2015 | 14:00

44 fyndnustu augnablik í golfinu (15/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 29

Bubba Watson, Rickie Fowler, Hunter Mahan og Ben Crane sýndu nakta húð og að þeir gætu sungið (ja, svona nokkurn veginn) og dansað (hmmm 🙂 árið 2011 þegar The Golf Boys komu út með hið gríðarvinsæla golflag a“Oh Oh Oh.“  Í myndskeiðinu má m.a. sjá mömmustrákinn Hunter Mahan blóta (úbs). Sjá myndskeiðið með því að SMELLA HÉR: 

Þeir fylgdu því síðan eftir með myndskeiðinu  „2.Oh“ árið  2013. Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Ekkert lag frá þeim í ár? Ég meina lögin virðast koma út á 2 ára fresti!