Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2015 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Gísli, Bjarki og félagar í Kent State í sigursæti í Ohio!

Bjarki Pétursson, GB og Gísli Sveinbergsson, GK og félagar í Kent State eru að kepptu á Cleveland State Invitational, móti í bandaríska háskólagolfinu.

Leikið var í Aurora, Ohio 5.-6. október og gestgjafi var Cleveland State University. Keppendur voru 78 frá 13 háskólum.

Gísli lauk keppni T-7; lék á samtals 3 undir pari, 215 höggum  (73 73 69).

Bjarki varð T-32; lék á samtals 7 yfir pari 223 höggum (75 71 77)

Golflið Kent State, The Golden Flashes varð í 1. sæti fyrir lokahringinn, sem leikinn verður í dag.

Til að sjá lokastöðuna á Cleveland State Invitational SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Gísla, Bjarka og Kent State er 9. október n.k. þ.e. Bank of Tennessee mótið í Tennessee.