Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2015 | 12:00

Nordic Golf League: Axel tryggði sér sæti á lokaúrtökumótið

Axel Bóasson , GK, tryggði sér í gær sæti á lokaúrtökumótinu fyrir Nordic Golf League atvinnumótaröðina.

Axel endaði í 3.-4. sæti á -2 samtals en hann lék síðari keppnishringinn á 75 höggum en hann lék fyrri hringinn á 67 höggum.

Alls komust 22 efstu áfram á lokaúrtökumótið sem hefst á morgun, fimmtudag, og fer það fram á þessum sama velli, Skjoldenæsholm vellinum í Danmörku.

Ólafur Björn Loftsson úr GKG verður á meðal keppenda á því móti einnig.

Alls voru fimm mót á fyrra stigi úrtökumótsins fyrir Nordic League atvinnumótaröðina. Mótaröðin er í hópi atvinnumótaraða sem teljast vera þriðju sterkustu atvinnumannadeildir Evrópu. Mótaröðin er samvinnuverkefni danska-, sænska- og norska golfsambandsins.

Sjá má lokastöðuna á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Nordic Golf League með því að SMELLA HÉR: