Hver er kylfingurinn: Thorbjörn Olesen?
Sá sem sigraði á Alfred Dunhill mótinu var danski kylfingurinn Jacob Thorbjörn Olesen. Þetta var 3. sigur hans á Evrópumótaröðinni en hann vann fyrsta sigur sinn á Evrópumótaröðinni fyrir 3 árum. Það var Opna sikileyska (ens. Sicilian Open)
Hver er þessi huggulegi, ungi Dani, sem margir eru farnir að tala um sem hinn nýja „Martin Kaymer“ Danmerkur?
Thorbjörn Olesen er fæddur í Furesø, Danmörku 21. desember 1989 og er því 25 ára. Hann gerðist atvinnumaður fyrir 7 árum, 2008, aðeins 18 ára. Hann varð í 4. sæti strax á 1. keppnistímabili sínu á Nordea mótaröðinni, 2009, þar sem hann vann 3 mót og fékk þar með kortið sitt á Áskorendamótaröð Evrópu 2010. Það sumar, í júlí 2010, vann hann fyrsta mót sitt á Áskorendamótaröðinni, The Princess, sem haldið var í Svíþjóð. Hann varð nr. 3 á stigalista Áskorendamótaraðarinnar og hlaut þar með kortið sitt á Evrópumótaröðinni, 2011.
Í desember 2010 varð Olesen í 2. sæti á Alfred Dunhill Championship, fyrsta mótinu á 2011 keppnistímbili Evróputúrsins. Í júní 2011 varð Olesen T-2 á BMW Italian Open í Tórínó, mestmegnis vegna glæsihringjar upp á 62 högg á lokahringnum, en Robert Rock átti samt 1 högg á hann og vann mótið. Næsta mánuð á eftir varð Olesen enn í 2. sæti á Alstom Open de France þegar hann fékk skolla á lokaholuna og varð aftur 1 höggi á eftir þeim sem vann, sem í það skiptið var Thomas Levet. Með þessum góða árangri ávann Olesen sér þátttökurétt á Opna breska 2011, en þar náði hann ekki að komast í gegnum niðurskurð.
Þegar Olesen vann fyrsta sigur sinn á Evrópumótaröðinni sagði hann við það tækifæri aðspurður um hvernig tilfinningin væri:
„Hún er frábær, ég var þrívegis í 2. sæti í 2011, þannig að það ná fyrsta sigrinum er æðislegt.“
Eftir lokamót 2012 keppnistímabilsins DP World Tour Championship, Dubai þar sem Olesen varT21, þá náði Olesen í fyrsta sinn að komast á topp-50 á heimslistanum og spilaði í Masters í fyrsta sinn 2013.
Í Masters 2013 vakti Olesen athygli á sér því eftir skelfilegan opnunarhring upp á 78 högg sýndi hann karakter og kom til baka með hringjum uppá 70 68 68 og var á 4 undir pari, 284 höggum samtals, sem varð til þess að hann varð T-6.
Þrír lokahringir hans upp á samatas 206 högg, samtals 10 undir pari, voru þeir bestu á risamótinu. Hann vann sér inn nógu mikið vinningsfé til þess að hljóta sérstakan tímabundinn keppnisrétt á PGA Tour, sem hann þáði. Þetta leiddi m.a. til þess að hann fékk ótakmarkaðan aðgang að undanþágum styrktaraðila, það sem eftir var 2013 keppnistímabilsins.
Þann 28. október 2014 sigraði Olesen á ISPS Handa Perth Internationali – átti 3 högg á Victor Dubuison – þetta var 2. sigurinn.
Svo í gær, 4. október 2015 kom 3. sigurinn á Evrópumótaröðinni á Alfred Dunhill Championship.
Til þess að sjá myndskeið með gullfallegri golfsveiflu Olesens smellið HÉR:
Sjá má viðtal við Olesen (á dönsku) – tekið rétt áður en hann komst á Evrópumótaröðina, með því að smella HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024


