Ragnar Már Garðarsson, GKG. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2015 | 19:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín og Ragnar Már við keppni í Mexíkó

Þeir Haraldur Franklín Magnús, GR og Ragnar Már Garðarsson, GKG og félagar í golfiði Louisiana Lafayette, The Ragin Cajuns, eru við keppni í Cabo del Sol, Mexíkó.

Leikið er í Cabo del Sol CC á tveimur völlum Ocean, sem hannaður er af Jack Nicklaus og sjá má með því að SMELLA HÉR:  og Desert eða eyðimerkurvellinum.

Mótið stendur dagana 4.-6. október 2015.  Keppendur eru 58 frá 10 háskólaliðum.

Fylgjast má með gengi Haraldar og Ragnars Más með því að SMELLA HÉR: