Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sunna Víðisdóttir – 4. október 2015

Þetta er stór afmælisdagur kylfinga þ.e. það eru margir frábærir kylfingar, sem eiga afmæli í dag. Þegar unnið er alla daga við að skrifa afmælisgreinar sést fljótt að suma daga er varla hægt að finna kylfing sem fæddur er á viðkomandi degi og svo aðra daga, sem margir stórkylfingar eru fæddir á. Þeir sem fæddir eru í dag virðast fæddir undir stórri golfstjörnu!!!

Afmæliskylfingur dagsins er Sunna Víðisdóttir en hún er fædd 4. október 1994 og á því 21 árs afmæli í dag!!! Sunna leikur golf í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Elon. Hún byrjar keppnistímabilið 2015-2016 glæsilega. Sunna tók einnig fyrir ári síðan þátt í  HM kvennalandsliða í Japan. Hún er auk þess Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2013.  Og þá er aðeins fátt eitt nefnt!

Komast má á heimasíðu afmæliskylfings dagsins til þess að óska Sunnu til hamingju með daginn hér að neðan:

 

1-a-sunna

Sunna Víðisdóttir (21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bonnie Bryant, 4. október 1943 (72 ára); Bjarney Guðmundsdóttir, 4. október 1953 (62 ára) Sherri Turner, 4. október 1956 (sigurvegari í LPGA meistaramótinu 1988 – 59 ára í dag); Haukur Holm Hauksson, 4. október 1962 (53 árs);  Patti Berendt, 4. október 1963 (52 ára); Helgi Jóhannsson, 4. október 1963 (52 ára); Kolbrún Ólafsdóttir, 4. október 1962 (53 ára); Jenny Sevil, (áströlsk), 4. október 1963 (52 ára); Lucas Parsons, 4. október 1969 (46 ára); Arnar Jónsson, 4. október 1973 (42 ára); Gary Boyd, 4. október 1986 (29 ára); Jessica Yadloczky, 4. október 1988 (27 ára); Árni Gestsson, 4. október 1989 (26 ára)…… og ……. Kristin Snaefells Arnthorsdottir og Ari Sigvaldason

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is