Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2015 | 10:00

GA: Björgvin tók fyrstu skóflustunguna

Nákvæmlega fyrir viku, þ..e sunnudaginn 27. september var tekin fyrsta skóflustungan af nýju og glæsilegu æfingaskýli hjá Golfklúbbi Akureyrar, sem fengið hefur nafnið Klappir.

Var það Björgvin Þorsteinsson, GA félagi og margfaldur Íslandsmeistari í golfi sem tók fyrstu skóflustunguna að viðstöddum fjölmörgun GA félögum sem fögnuðu með okkur á þessum merka degi.

Björgvin Þorsteinsson

Björgvin Þorsteinsson

Vinna fór svo á fullt í dag þar sem hafist var handa við að moka fyrir grunninum.

Áætlað er að taka Klappir í notkun í byrjun næsta sumars.