Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2015 | 13:00

Robert Allenby hefir verið með 24 kaddýa á ferli sínum

Robert Allenby hefir verið mikið í fréttum á árinu vegna meints mannráns á honum, barsmíðum og stuldi á eigum hans á Hawaii, sem var mikið í fréttum í upphafi árs. Sjá t.d eldri fréttir Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR og SMELLA HÉR og með því að SMELLA HÉR: og SMELLA HÉR:

Eins komst hann í fréttirnar á árinu þegar hann rak kylfusveininn sinn á miðjum hring – Sjá fréttir Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR: SMELLA HÉR:  og SMELLA HÉR: 

Allenby hefir verið í fréttum fyrir allskyns undarlega hegðun og uppákomur, en minna fyrir góða frammistöðu á golfvellinum í gegnum tíðina.

Árið 2009 sakaði hann bandaríska kylfinginn Anthony Kim um að hafa verið í partýi fyrir leik þeirra í Forsetabikarnum – sem var óskiljanlegt – því Kim sigraði.

Í Forsetabikarnum 2011 sagði Allenby að slælegur árangur sinn í mótinu 0-4 væri liðsfélögunum að kenna.  Geoff Ogilvy lenti m.a. í karpi í golffjölmiðlum við Allenby út af þessu.

Allenby hefir m.a. komist í golffréttir fyrir að hafa verið eltur af apa á golfvellinum. Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Nú nýlega gaf Allenby síðan viðtall við fréttamann USA Today, Josh Peter.   Þar kom m.a. eftirfarandi fram:

Allenby segist hafa þurft að leita til sálfræðings vegna alls ruglsins, sem átt hefir sér stað í lífi hans. „Þetta hefir verið virkilegt  áfalla ár,“ sagði Allenby m.a..  „Það hefir verið ansi erfitt að taka því.“

Meðal annars sem fram kemur í viðtalinu:

* Allenby hefir ráðið 24 kaddýa á ferli sínum sem atvinnumanns í golfinu.

* Hann er þekktur sem „Dýrið“ eða „The Beast“ meðal kaddýanna. Meðal djóka sem ganga um Allenby og sagna er eftirfarandi: „Did The Beast get out of the cage today?'“ sem m..a. Cameron Ferguson, einn af fyrrum kaddýumAllenby á fyrst að hafa sagt um hann. Annar fyrrum kylfusveinn Allenby á að hafa sagt um hann: „Það er svo sannarlega klofinn persónuleiki á ferðinni þarna … þetta gat verið helvískt.“

* Allenby sagði að kylfur sínar hefðu verið skemmdar á  Hartsfield–Jackson alþjóðaflugvellinum í Atlanta nú í ár.

*  Robert Floyd, sonur frægðarhallarkylfingsins Raymond Floyd og fyrrum kylfusveinn telur að Allenby eigi við áfengisvanda að glíma.

* Þrátt fyrir allt og erfið sambönd sín er Allenby þekktur fyrir að vera einstaklega rausnarlegur við kylfusveina sína.

Það er vonandi að Allenby nái tökum á hverju svo sem hann er að glíma við!