Bandaríska háskólagolfið: Ari og Theodór Emil og UAM í 3. og 5. sæti í 2 mótum!
Ari Magnússon GKG og Theodór Emil Karlsson GM hafa líkt og aðrir íslenskir kylfingar í bandaríska háskólagolfinu hafið keppnistímabilið með golfliði háskóla síns University of Arkansas Monticello (UAM).
Það sem af er keppnistímabilsins hafa þeir félagar keppt í 2 mótum: Great American Conference Preview og Union Fall Classic.
Í fyrra mótinu, sem fram fór 14.-15. september 2015, GAC Preview lenti golflið UAM í 5. sæti; leikið var í Lake Hefner CC í Oklahoma; Theodór Emil varð T-18 á 221 höggi (72 73 76) og Ari T-48 (79 81 73) í einstaklingskeppninni. Sjá má úrslitin í GAC Preview með því að SMELLA HÉR:
Í seinna mótinu Union Fall Classic varð golflið UAM í 3. sæti. Mótið fór fram dagana 28.-29. september 2015 í Jackson CC, í Tennessee. Þátttakendur voru 46 og 8 háskólalið. Theodór Emil náði þeim glæsilega árangri að verða T-5 í mótinu með hringi upp á samtals 147 högg (76 71) og Ari varð T-34 á samtals 157 höggum (82 75). Sjá má lokastöðuna með því að SMELLA HÉR:
Næsta mót Ara og Theordórs Emils og félaga í UAM er Midwestern State Inv., sem fram fer 18.-20. október í Wichita Falls CC í Texas.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
