Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2015 | 14:00

44 fyndnustu augnablik í golfinu (9/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 36

Hér kemur einn fyrir Entourage aðdáendur.   Fæstir eru eins og Vince (leikinn af Adrien Grenier), sem kynþokkinn lekur beinlínis af þannig að hann verður að verjast aðgangshörðum kvenmönnum við hvert fótmál. Hálfbróðir hans Johnny Drama (sem leikinn er af Kevin Dillon) er alveg sérlega ólánlegur.  Johnny finnst mjög miður að vera eftirbátur bróður síns – ekki bara í kvennamálum heldur er hann með 15 í forgjöf í golfi og er ekki einu sinni að  spila á henni. Johnny er líka búinn að leggja meira undir en hann hefir efni á. Þegar allt um þrýtur grípur hann til þess ráðs að fá dræver Tom Brady lánaða…. aðeins til þess að nokkuð gerist sem ekki ætti að sjást á golfvelli!

Þetta er eitt svona dæmigert: „Árinni kennir illur ræðari“ – myndskeið.  Til að sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR: 

(Hér má einnig sjá samantekt af bestu golfbútunum úr Entourage – nokkuð áhugavert að fræðast um hvað lagt er undir í kvennagolfinu! 🙂   SMELLIÐ HÉR: