Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2015 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Katrin Björg Aðalbjörnsdóttir – 24. september 2015

Það er núverandi klúbbmeistari kvenna í GHR, Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Katrín er fædd 24. september 1961. Hún er í Golfklúbbnum á Hellu, (GHR). Katrín hefir gegnt ýmsum stjórnarstörfum fyrir GHR og er núverandi ritari klúbbsins. Hún er gift formanni klúbbsins Óskari Pálssyni og á 3 börn þ.á.m. afrekskylfinginn Andra Má.

Á þeim tveimur árum sem Golf 1 hefir verið starfandi hafa verið tekin fjöda viðtala, sem stendur yfir 200, víð íslenska sem erlenda kylfinga og var viðtal Golf 1 við Katrínu Björg eitt af því fyrsta og má sjá með því að SMELLA HÉR:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tommy Armour, f. 24. september 1895- d. 11. september 1968); Margret Waage, 61 árs; W-7 módelið Lisa Hall, 24. september 1967 (48 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is