Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2015 | 10:00

44 fyndnustu augnablik í golfinu (2/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.
Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 43

Kylfingar hvort heldur er sá almenni eða atvinnumennirnir eiga það til að tryllast í golfinu.  Og það getur verið fyndið að fylgjast með því.  Óvanalegra er að golffréttamenn tryllist – en þó var til einn slíkur körfubolta goðsögnin Bobby Knight sem var með „golfkennsluþætti“ í bandaríska sjónvarpinu, sem nefndust „Golf Your Way.“

Knight var þekktur fyrir að bölva og er varað við blótsyrðum og dónaorðbragði  í meðfylgjandi myndskeiði SMELLIÐ HÉR: