Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2015 | 13:00

PGA: Rory tilbúinn fyrir Tour Championship

Mót vikunnar á PGA Tour er lokamót keppnistímabilsins, Tour Championship, sem fram fer í East Lake í Atlanta, Georgia.

Sigur sérhverra hinna 5 sem efstir eru á FedExCup listanum: Jason Day, Jordan Spieth, Rickie Fowler, Henrik Stenson eða Bubba Watson tryggir þeim hinum sama $10 milljóna bónuspottinn, sem allir 30 lokakeppendurnir keppast um.

Eftir því sem neðar dregur á listanum verða líkurnar skiljanlegri minni, s.s. í tilviki Harris English, sem þarf á smá kraftaverki að halda til þess að taka bónuspottinn.

Sá sem á mestu möguleikana er Jason Day, en hann hefir sigrað í 5 mótum á PGA Tour 2015.

Það stig sjálfstraust sem ég spila með nú er hærra en það hefir nokkru sinni verið. Það er súrrealístískt og ég er fleyti mér áfram á því,“ sagði Day í síðustu viku eftir sigur á BMW Championship á Conway Farms.

Andlega hliðin gæti ráðið úrslitum hjá Day í þessari viku. Hann viðurkenndi að hann hefði átt svefnlausar nætur þegar hann stóð frammi fyrir að verða besti kylfingur heims, þ.e. í efsta sæti á heimslistanum.  Nú er sá hvati farinn en hvatinn hlýtur eftir sem áður að vera að klára.

En hverjir aðrir en Day eru líklegir til að sigra á Tour Championship?

Jordan Spieth hefir tvo sigra á risamótum í beltinu og hefir verið í efstu sætum fjölmargra móta –

En það er Rory McIlroy, sem virðist vera hæst skrifaður hjá mörgum; hann er í 11. sæti sem er á FedExCup listanum og hefir dottið úr efsta sæti heimslistans.  Hvatinn fyrir hann að vinna mótið gæti ekki verið stærri.  Það kemur öllum á óvart hversu fljótt hann hefir jafnað sig eftir ökklameiðslin; flestir voru búnir að afskrifa hann fyrir restina af árinu.  Langa spilið hans er framúrskarandi; eina veika hlið hans eru púttin.

Rory varð T-2 fyrir ári síðan á Tour Championship, eitthvað sem e.t.v. enn situr í honum; aðeins sigurvegarinn Billy Horschel stóð sig betur en hann. Hann viðurkenndi líka í viðtölum eftir leikinn að hann væri mjög andlega þreyttur m.a. eftir öll lætin eftir skilnaðinn við Caroline Wozniacki, dómsmálin og hreinlega öll mótin sem hann keppti í ofanálag í.   Það gagnstæða á við nú – hann er hvíldur og kominn með kærustu.  Það veltur bara allt á púttunum hjá honum – en hann er svo sannarlega tilbúinn í slaginn fyrir Tour Championship.

Hann var T-4 í drævum og að hitta flöt á tilskyldum höggafjölda og hann vill eflaust ljúka keppnistímabilinu með stæl – áður en nýtt tímabil hefst í Kaliforníu vikum þar á eftir.   Já, Rory er til slaginn.