Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2015 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sólveig Leifsdóttir – 21. september 2015

Það er Sólveig Leifsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Sólveig er fædd 21. september 1951. Hún er í Golfklúbbi Ísafjarðar. Sólveig er góður kylfingur og það er sannkölluð ánægja og heiður að spila golf með henni; hún er góður félagi utan vallar sem innan.

Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Sólveig Leifsdóttir, GÍ. Mynd: Í einkaeigu
Sólveig Leifsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Albína Unndórsdóttir (68 ára); Siglfirðingur Siglufirði (57 ára);  Hulda Björg Birgisdóttir (55 ára); Lia Biehl, (spilaði á LPGA) 21. september 1969 (46 ára); Svana Jónsdóttir (39 ára); Hannes Jóhannsson, GSG, 21. september 1979 (36 ára) ….. og …..  Erna Nielsen

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is