Ragnheiður Jónsdóttir | september. 18. 2015 | 14:00

Skrítið en satt (3/8)

Golfvöllurinn er rólegur staður þar sem hægt er að flýja raunveruleikann, en stundum er það sem gerist þar skrítnara en raunveruleikinn. Nick Price drævaði eitt sinn golfbolta og hann festist í óæðri enda svíns. Golf Digest bað þá sem „followa” blaðið á félagsmiðlunum (Twitter og Facebook) að deila skrítnustu sögum sínum af golfvellinum. Þar á meðal eru nokkur atriði sem virkilega koma á óvart; t.a.m. óheppni kylfingurinn sem leitaði skjóls fyrir stormi innan í færanlegu klósettu, en síðan feykti vindurinn færanlega klósettið út í móa. Við hér á Golf 1 ætlum að spara ykkur skítugu smáatriðin en hér fara nokkrar sögur sem okkur fundust skemmtilegar

WHITE DEER G. CSE., MONTGOMERY, PA.
„Á svæðinu býr mikið af Amish fólki þannig að það var ekki skrítið að sjá mann í dökkum fötum sitja að veiðum við eina tjörnina á golfvellinum. En svo heyri ég hann hrópa og sé hest hlaupa niður 3. brautina, sem dró á eftir sér vagn. Hesturinn hljóp jafnvel í gegnum glompu á leið sinni að klúbbhúsinu, þar sem hann stóð síðan bara og beið eftir eiganda sínum. Það var fullt af fólki á vellinum þennan dag þannig að þetta vakti mikla athygli.“

Bob Koch, Williamsport, Pa.