Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2015 | 09:00

Magnús Íslandsmeistari öldunga PGA

Icelandic PGA Senior Open er árlegt mót þeirra PGA kennara sem eru 50 ára og eldri.

Fyrirkomulagið er holukeppni og var úrslitaleikurinn í ár spilaður af þeim Magnúsi Birgissyni GO og Sigurði Hafsteinssyni GR.

Úrslitaleikurinn var hörkuspennandi og endaði með því að Magnús sigraði á 18. holu 1/0.

Magnús er því íslandsmeistari öldunga PGA samtakanna.

Golf 1 óskar Magnúsi innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn!!!