Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2015 | 07:00

Axel og Þórður í erfiðri stöðu

Íslensku kylfingarnir Þórður Rafn Gissurarson, GR og Axel Bóasson, GK þurfa að leika vel á lokahringjunum tveimur á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina á Fleesensee vellinum í Þýskalandi.

Axel, sem er úr GK, og Íslandsmeistari í holukeppni er í 51. sæti á +2 samtals en hann lék á 73 höggum í gær líkt og á fyrsta hringnum, (73-73). Þórður, sem er Íslandsmeistari 2015 og er GR-ingur, lék á 73 höggum í gær (+1) og er hann samtals á +5 (76-73) í 58. sæti af alls.

Til þess að sjá stöðuna í mótinu SMELIÐ HÉR: 

Alls eru 110 keppendur á þessum velli en 22 efstu komast áfram á 2. stig úrtökumótsins en alls eru stigin þrjú á úrtökumóti Evrópumótaraðarinnar.
Ólafur Björn Loftsson, GKG, er skráður til leiks á C Golf d’Hardelot völlinn í Frakklandi en það mót hefst 29. september.
Birgir Leifur Hafþórson, GKG, fer beint inn á annað stig úrtökumótsins en hann er enn við keppni á mótum á Áskorendamótaröðinni.
1. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina fer fram á 8 mismunandi keppnisvöllum. Um 900 kylfingar taka þátt á þessum keppnisstöðum og komast um 25% þeirra áfram á 2. stig úrtökumótsins.

2. stig úrtökumótsins fer fram á fjórum keppnisvöllum samtímis 6.–9. nóvember á Spáni.

3. stigið jafnframt lokaúrtökumótið fer síðan fram 14.–19. nóvember á Spáni.