Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2015 | 06:45

Axel á +1 og Þórður Rafn +4 e. 1. dag úrtökumóts f. Evróputúrinn

Það er á brattann að sækja hjá íslensku kylfingunum sem hófu keppni á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í gær, 15. september 2015. Þórður Rafn Gissurarson, Íslandsmeistari í golfi 2015, og Axel Bóasson, Íslandsmeistari í holukeppni 2015, taka þátt á Fleesensee vellinum sem er í Þýskalandi. Axel lék á +1 í dag eða 73 höggum og er hann í 35. – 40. sæti en Þórður lék á 76 höggum eða +4 og er hann í 58.–70. sæti.

Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR:

Alls eru 110 keppendur á þessum velli en 22 efstu komast áfram á 2. stig úrtökumótsins en alls eru stigin þrjú á úrtökumóti Evrópumótaraðarinnar.

Ólafur Björn Loftsson, GKG, er skráður til leiks á C Golf d’Hardelot völlinn í Frakklandi en það mót hefst 29. september.

Birgir Leifur Hafþórson, GKG, fer beint inn á annað stig úrtökumótsins en hann er enn við keppni á mótum á Áskorendamótaröðinni.

1. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina fer fram á 8 mismunandi keppnisvöllum. Um 900 kylfingar taka þátt á þessum keppnisstöðum og komast um 25% þeirra áfram á 2. stig úrtökumótsins.
2. stig úrtökumótsins fer fram á fjórum keppnisvöllum samtímis 6.–9. nóvember á Spáni.
3. stigið jafnframt lokaúrtökumótið fer síðan fram 14.–19. nóvember á Spáni.