Ragnheiður Jónsdóttir | september. 15. 2015 | 07:00

GA: Golfferð til Barcelona 9.-19. október

Sturla golfkennari GA, í samstarfi við ferðaskrifstofuna Trans Atlantic, stendur fyrir 10 daga golfferð sérstaklega fyrir GA félaga, dagana 9.-19. október n.k.

GA golfferð

 

Flogið er á Barcelona og dvalið á hinu frábæra 4 stjörnu Barcelona Resort & Spa, aðeins í 20 mín. frá miðborg Barcelona.
Hálft fæði og ótakmarkað golf á 18 holu keppnisvelli ásamt 9 holu æfingavelli, báðir hannaðir af spænsku goðsögninni José María Olazabal. Sturla býður þeim kylfingum sem vilja uppá 4 daga golfskóla í ferðinni og verður líka hægt að taka einkatíma.
Einnig veður boðið uppá þann möguleika að fara á heimaleik með FC Barcelona á Camp Nou þann 18. október.

Verð með golfskóla: 255.900 kr. á mann í tvíbýli (einbýli 279.900)
Verð án golfskóla: 235.900 kr. á mann í tvíbýli (einbýli 259.900)

Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Sturlu á sturla@gagolf.is eða í s: 868-4785. ATH. takmarkaður sætafjöldi.

Með kveðju,
Sturla Höskuldsson
PGA Golfkennari GA