Ragnheiður Jónsdóttir | september. 14. 2015 | 12:00

Sevie (2 ára) ætlar að feta í fótspor Rory

Sevie litli er bara 2 ára en hann er farinn að sýna golfleiknum ofuráhuga eins og margar stjörnur golfsins á undan honum.

Sevie er frá County Antrim á Írlandi og er að taka golfheiminn með trompi.

Hann heitir fullu nafni  Sevie Trowlen og hundruðir hafa skoðað myndskeið með honum á Facebook og Youtube og dást að getu þessa smákrakka.

Pabbi Sevie, Sean sagði UTV: „ Við horfðum á Ryder Cup 2012 og evrópska liðið var að hylla Seve sem dó árinu áður. Við féllum algerlega fyrir nafninu og ákváðum að skýra son okkar því, með þeirri einu breytingu að hann er kallaður SEVIE hér til þess að fólk nái framburðinum.“

„Hann (Sevie) var kominn með golfkylfu í hendurnar áður en hann gat gengið. Hann fékk þó nokkra athygli á the Northern Irish Open í þessari viku.”

Trowlen fjölskyldan hefur komið upp púttflot í bakgarði sínum og hlaða reglulega upp myndskeiðum af syninum og nýjustu golfhæfileikum hans.

Sevie litli æfir á Colin Park golfvellinum, þar sem hann sést reglulega á æfingaflötinni.

Sjá má myndskeið með Sevie litla með því að SMELLA HÉR: