Phil Mickelson
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 9. 2015 | 00:45

Mickelson og Haas valdir í lið Bandaríkjanna í Forsetabikarnum – Bae og Bowditch í Alþjóðaliðið

Phil Mickelson var val fyrirliðans Jay Haas í Forsetabikarnum jafnvel þó hann sé aðeins í 23. sæti á heimslistanum (30. sæti á Forsetabikarslistanum) og hafi ekki unnið keppni í 2 ár.

Jay valdi líka son sinn Bill Haas, en við því var auðvitað búist af flestum. Bill Haas hefir spilað í síðustu 2 Forsetabikarskeppnum og var í 29. sæti á heimslistanum (11. sæti á Forsetabikarslistanum).

Jay Haas segir að Mickelson verðskuldi að vera valinn eftir að hafa verið í liðinni sl. 20 skipti (bæði Ryder og Forsetabikarskeppnum) án þess að þurfa þess að verða valinn af fyrirliðanum til þessa. Haas lýsti Mickelson líka sem liðsstjórnanda.

„Ég er svo stoltur af að vera í þessu liði“ sagði Mickelson. „Og að það komi að ósk svo margra leikmanna og varafyrirliða sem vildu að ég væri í liðinu, það hefir meiri þýðingu en ég kem orðum að. Það er bara mjög sérstakur heiður að fá að vera í liðinu.“

Forsetabikarinn fer fram í Suður-Kóreu 8.-11. október n.k.

Lið Bandaríkjanna og Alþjóðaliðið (allar heimsálfur nema Evrópa) eru skipuð eftirfarandi leikmönnum:

Bandaríkin

Fyrirliði: Jay Haas

Bubba Watson

Rickie Fowler

Jim Furyk

Dustin Johnson

Zach Johnson

Chris Kirk

Matt Kuchar

Patrick Reed

Jordan Spieth

Jimmy Walker

Val fyrirliða:

Phil Mickelson

Bill Haas.

Alþjóðliðið

Fyrirliði: Nick Price

Jason Day, Ástralía

Branden Grace, Suður-Afríka

Thongchai Jaidee, Thailand

Anirban Lahiri, Indland

Danny Lee, Nýja-Sjáland

Marc Leishman, Ástralía

Hideki Matsuyama, Japan

Louis Oosthuizen, Suður-Afríka

Charl Schwartzel, Suður-Afríka

Adam Scott, Ástralía

Val fyrirliða:

Sang-moon Bae, Suður-Kórea

Steven Bowditch, Ástralía