Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Rafn Gissurarson – 8. september 2015

Það er Íslandsmeistarinn í höggleik 2015, Þórður Rafn Gissurarson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Þórður Rafn er fæddur 8. september 1987 og á því 28 ára afmæli í dag. Þórður Rafn er afrekskylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, sem hefir spilað mikið á þýsku EPD-mótaröðinni.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Þórð Rafn með því að SMELLA HÉR:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ólafur William Hand, 8. september 1968, GR (47 ára) ….. og …… Margrét Elsa Sigurðardóttir (49 ára) …. og … Ólína Þorvarðardóttir (57 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is