Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2015 | 14:30

Kaymer tekur þetta á reynslunni

Kaymer er á samtals 11 undir pari, eftir 3 hringi á Whistling Straits, fjórum höggum á eftir forystumanninum Jason Day.

Í gær var Kaymer á sjóðandi 7 undir pari, 65 höggum og er þar með kominn meðal þeirra efstu lokahringinn, sem verður leikinn í dag.

Á fullkomnum hring hans fékk hann m.a. 5 fugla á seinni 9.

Fyrrum nr. 1 á heimslistanum (Martin Kaymer) hefir sigrað á 2 risamótum og hefir verið hluti af 3 sigurliðum Evrópu í Rydernum.

Þar að auki á hinn 11-faldi sigurvegari á Evróputúrnum góðar minningar frá Whistling Straits, þar sem hann vann Bubba Watson í bráðabana þegar hann vann fyrri risatitil sinn 2010.

Ég gerði ekki mikið af mistökum þá…. hitti mikið af brautum, ég náði inn á flöt oft á tilskyldum höggafjölda en mestu skiptu púttin,“ sagði hinn 30 ára Kaymer í viðtali á  europeantour.com.

Nú þegar maður hefir sigrað á stöðum mótum í Ameríku, í Evrópu, í Rydernum, allar þessar minningar og reynsla, hvernig manni líður sem leikmanni þegar maður er í þessum krítísku sitúasjónum undir mikilli pressu, þá lærir maður mikið um sig sjálfan og maður lærir mikið um hvernig maður höndlar pressuaðstæður. Allir takast öðruvísi á við þær.“

Það fyndna er að maður hugsar: „Hann vann tvo eða þrjá risatitla hér eða þar og hann veit hverng hann höndlar þrjár eða fjórar holur, en allar aðstæður eru öðruvísi.“

Vegna þess í hvert skipti sem maður spilar annan golfvöll, þá spilar maður á móti einhverjum nýjum og það er ekki virkilega hægt að æfa fyrir það.“

Og það er það sem ég vissi ekki fyrir 5 árum.  Ég hélt að þess gæjar, sem unnu meistaramótin áður, þeir vissu það, fyrir þeim er þetta daglegur bissness á aðeins hærri skala. Fyrir mig var þetta gríðarstórt.  Og það er alltaf stórt; og ég gerði mér ekki grein fyrir því þá.“

Spennandi hvort Kaymer tekst að sigra í kvöld!