Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 31. 2015 | 08:00

Guðbjörg Erna, Ragnheiður og Birna sigruðu í vinkvennamóti GK og GO – Bikarinn áfram hjá GK – Matthildur fór holu í höggi!!!

Seinna vinkvennamót GK og GO fór fram á Urriðavelli í 29. júlí 2015 og tóku 103 konur þátt í mótinu.

Þær sem skipa sér í fyrstu þrjú sætin voru allar á 72 höggum samanlagt úr báðum mótunum en úrslitin eru:

1. Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir GK
2. Ragnheiður Ríkharðsdóttir GK
3. Birna Bjarnþórsdóttir GO

Anna Jódís Sigurbjörnsdóttir GK var með lægsta samanlagt skor bæði mótin, samtals 161 högg.

Hulda Soffía Hermannsdóttir var n æst holu á 8. braut og Matthildur Helgadóttir gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 13. braut.

Golf 1 óskar Matthildi til hamingju með draumahöggið!!!

Keiliskonur héldu bikarnum en það munaði þremur punktum á liðunum þ.e. GO var með 722 punkta úr báðum mótunum og GK með 725 punkta.

Til hamingju allar saman!!!