Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2015 | 08:55

Rose óskar Rory góðs bata

Nr. 7 á heimslistanum Justin Rose á titil að verja á Opna skoska, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni.

Hann er einn þeirra fjölmörgu kylfinga,  sem komið hafa fram og óskað nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy góðs bata.

Í viðtali við Daily Mail sagði Rose að þessi meiðsl Rory hefðu komið af stað umræðunni um hvort íþróttamenn ættu að getað lifað lífi sínu eða verið algerlega einbeittir allan tímann við íþrótt sína.

Hann sagðist líkt en jafnframt ólíkt Rory (Rory meiddist jú í fótboltaleik) líklega hafa þegið að spila tennis með vinum sínum og þar væri örugglega líka hægt að verða fyrir meiðslum, þetta væri bara nokkuð sem kæmi fyrir og væri sérlega „grimmdarlegt“ á miðju sumri að meiðast svona.

Óskaði Rose Rory góðs og fljóts bata.

Sjá má á myndskeiði viðtal Daily Mail við Justin Rose með því að SMELLA HÉR: