Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 13:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur á 68 höggum í dag!!!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lék á stórglæsilegum 3 undir pari, 68 höggum á Hartl golfvellinum í Þýskalandi á 2. hring AEGEAN Airlines Challenge Tour, sem er mót á Áskorendamótaröð Evópu.

Birgir Leifur er því samtals á sléttu pari (74 68) og allt lítur út fyrir að hann komist í gegnum niðurskurð  í mótinu í augnablikinu.

Til þess að sjá stöðuna á eftir 2. dag á AEGAEN Airlines Challenge Tour SMELLIÐ HÉR: