Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2015 | 14:00

Kylfingur með 3 ása á ótrúlegum hring upp á 57!!!

Fyrrum hermaður Patrick Wills, 59 ára, er hæfileikaríkur kylfingur sem er með 4 í forgjöf, en aldrei í sínum villtustu draumum taldi hann að hann myndi fá 3 ása á hring og þ.á.m. 2 albatrossa og örn.

Líkurnar á að fá 3 ása á hring eru billjón á móti einum og ekki hefir fréttst af neinu slíku áður.

Wills náði þessum árangri í Laurel Hill Golf Club í Virginíu, í Bandaríkjunum, og ásarnir komu á par-4 7. holunni, par-4 10. holunni og 187 yarda par-3 14. holunni.

„Þegar við komum á flötina leit ég niður og ég vissi ekki hvernig mér leið – ég var dofinn,“ sagði Wills í viðtali við BBC.

„Ég veit ekki hvort ég var glaður þetta var svo ótrúlegt. Svo óraunverulegt!“