Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2015 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bryndís María Ragnarsdóttir – 4. maí 2015

Þetta er afmælisdagur mikilla kylfinga m.a. á nýbakaður heimsmeistari í holukeppni, Rory McIlroy afmæli í dag; er 26 ára.

En sá kylfingur sem er afmæliskylfingur dagsins hér á Golf 1 er Bryndís María Ragnarsdóttir, en hún á 20 ára stórafmæli í dag!

Bryndís María er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Fyrir tveimur árum, 2013, náði Bryndís María þeim glæsilega árangri að fara holu í höggi í móti Íslandsbankamótaraðarinnar í Þorlákshöfn. Rifja má það atvik upp með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu Bryndísar Maríu til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Bryndís María Ragnarsdóttir, GK. Mynd: Í einkaeigu

Bryndís María Ragnarsdóttir (Innilega til hamingju með 20 ára afmælið!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Charles Ross „Sandy“ Somerville, f. 4. maí 1903 – d. 17. maí 1991; Betsy Rawls, 4. maí 1928 (87 ára); Guðrún Ösp Þórgnýsdóttir, GK, 4. maí 1959 (56 ára); Jyoti Randhawa, 4. maí 1972 (43 ára – Indverskur); Rory McIlroy, 4. maí 1989 (26 ára);  Örvar Samúelsson, GA, 4. maí 1991 (24 ára); Halldór Jóhann Sævar Jósefsson, 4. maí 1996 (19 ára); Kristján Benedikt Sveinsson, GA, 4. maí 1999 (16 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is