LPGA: Brooke Henderson efst e. 2. dag North Texas Shootout
Hin unga, 17 ára Kanadamær Brooke M. Henderson lætur aftur að sér kveða og nú á North Texas Shootout. Hún vakti afhygli á sér um síðustu helgi þegar hún varð í 3. sæti í Swinging Skirts LPGA Classic mótinu, eftir að vera búin að leiða mestallt mótið.
S.s. Golf 1 greindi frá komst Brooke, sem ekki er með keppnisrétt á LPGA, rétt inn í mótið eftir að hafa orðið í 2. sæti á úrtökumóti fyrir LPGA mót vikunnar þ.e. North Texas Shootout. Sjá fréttina með því að SMELLA HÉR:
Sú sem sigraði í úrtökumótinu Heather Bowie Young lék á samtals 5 yfir pari og komst ekki einu sinni í gegnum niðurskurð.
Brooke er búin að spila á samtals 8 undir pari, 134 höggum (69 65) og er efst í hálfleik. Sjá má hálfleiksviðtal við hana með því að SMELLA HÉR:
Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Henderson eru Juli Inkster og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Inbee Park, þ.e. á 7 undir pari.
Núverandi nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Lydia Ko, rétt slapp í gegnum niðurskurð; er T-62. Nokkuð skondið atvik kom upp á 1. hring þegar kylfusveinn hennar bjargaði bolta hennar sem hún var búin að slá upp í tré – þetta kostaði Lydiu samt mörg högg á þessari holu í víti og næsta högg hennar fór auk þess út í vatn og hún endaði 1. hring á 75, en kom tilbaka í gær með hring upp á 68 högg og komst gegnum niðurskurð – Lydia hefir aldrei ekki komist í gegnum niðurskurð á LPGA mótaröðinni – hvorki sem áhuga- né atvinnumaður. Til þess að sjá kylfusvein Lydíu ná í bolta hennar upp í tré á skelfilega 1. hringnum SMELLIÐ HÉR:
Til þess að fylgjast með stöðunni á Volunteers of America North Texas Shootout mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
