LET Access: Valdís Þóra T-8 á sléttu pari – Ólafía Þórunn +2 e. 1. dag á Spáni
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL er T-8 þ.e. í 8.-18. sætinu eftir 1. dag á Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open, sem er mót á LET Access mótaröðinni.
Leikið er í Augas Santas Balneario & Golf Resort í Lugo, á Spáni og eru keppendur 107 (eða 105 þar sem tvær hafa dregið sig úr mótinu.
Valdís Þóra lék á sléttu pari, 70 höggum, fékk glæsiörn á par-5 7. brautinni og einn fugl en síðan því miður líka 2 skolla.
Ólafía Þórunn, lék 1. hringinn á 2 yfir pari, 72 höggum og er T-29 þ.e. í 29.-38. sætinu.
Ólafía Þórunn fékk 2 skolla og 1 fugl (einnig á par-5 7. brautinni, sem virðist reynast stúlkunum okkar góð braut!)
Efst eftir 1. dag er heimakonan, spænski áhugakylfingurinn Luna Sobron, sem lék á 5 undir pari, 65 höggum!
Til þess að sjá stöðuna á Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
