Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2015 | 10:00

PGA: Compton og Day leiða á Zurich Classic þegar 3. hring er frestað vegna myrkurs

Hjartaþeginn Eric Compton og ástralski kylfingurinn Jason Day leiða þegar 3. hring var frestað á Zurich Classic vegna myrkurs.

Báðir eru búnir að spila á 13 undir pari, en hvorugur hefir lokið 3. hring.

Fjórir kylfingar eru 1 höggi á eftir þeir: Justin Rose, Blayne Barber, David Hearn og Jerry Kelly.

Slugger White, varaforseti reglna og keppna á PGA Tour sagði að mótið yrði ekki stytt í 54 holu mót þrátt fyrir miklar tafir vegna rigninga – þetta yrði 72 holu mót og meira ef með þyrfti (bráðabana).

Reyna á að klára mótið í dag.

Til þess að fylgjast með Zurich Classic SMELLIÐ HÉR: