Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2015 | 15:00

Tiger staðfestir þátttöku í Players

Tiger Woods mun næst keppa eftir 2 vikur á The Players Championship, sem oft er nefnt 5. risamótið.

Mótið fer fram helgina 7.-10. maí á TPC Sawgrass.

Woods hefir ekkert spilað eftir að hann varð T-17 á The Masters.

Eftir lokahring sinn á The Masters sagði Tiger að hann „ætlaði að taka sér frí.“

Hann hefir bara spilað á 2 öðrum mótum það sem af er keppnistímabilisins, þar sem hann komst ekki í gegnum niðurskurð í Phoenix og dró sig úr Farmers Insurance Open.  Sem stendur er Tiger í 106. sæti á heimslistanum.

Tiger komst ekki á The Players í fyrra, 2014, vegna uppskurðar sem hann gekkst undir vegna bakverkjarins – árið þar áður, 2013, sigraði hann á The Players, með 2 höggum.

Í tvíti frá Tiger nú sagði:  „Looking forward to going back to THE PLAYERS this year, hoping for a repeat of 2013.“

(Lausleg þýðing: „Hlakka til að fara aftur og keppa á THE PLAYERS á þessu ári, vonast eftir að endurtaka leikinn frá 2013.

Eftir The Players tekur Tiger þátt í The Memorial, móti Jack Nicklaus, en þeir tveir kumpánar ræddu þátttöku Tigers í Memorial á Masters í löngu samtali en Gullni Björninn sagðist aldrei fyrr en þá hafa talað lengur en 2 mínútur við Tiger.