LPGA: Lydia Ko er ekki að verja titil á LPGA í fyrsta sinn
Lydia Ko á titil að verja í Swinging Skirts LPGA Classic mótinu, sem fram fer í Lake Merced golfklúbbnum í San Francisco nú um helgina, þ.e. 23.-26. apríl 2015.
Þetta er í fyrsta sinn sem hún á færi á að verja titil á LPGA sem atvinnumaður, en henni var búið að takast að sigra á LPGA móti og verja titil á LPGA þegar hún var aðeins 16 ára.
Það var á CN Canadian Women´s Open, sem er fyrsta LPGA mótið sem Ko tókst að sigra á en þá var hún aðeins 15 ára áhugamaður, sem gerir hana að þeirri yngstu til þess að sigra á LPGA. Árið eftir 2013, nánar tiltekið 25. ágúst 2013 tókst Lydiu Ko að verja titil sinn á CN Canadian Women´s Open, þeirri yngstu til þess að verja titil á LPGA.
17 ára varð Lydia Ko yngst til að vera valin nýliði ársins á LPGA og eins varð hún yngst 17 ára, bæði af karl- og kvenkylfingum til þess að verða nr.1 á heimslista.
Reyndar hefir aðila aðeins í 7 tilvikum tekist að sigra á LPGA áður en hann varð 18 ára og í 6 skipti er Lydia Ko sá aðili, en henni hefir alls tekist að sigra 6 sinnum á LPGA fyrir 18 ára aldur, en Lydia Ko verður 18 ára á morgun, föstudaginn 24. apríl 2015.
Hinum aðilanum sem tókst að sigra á LPGA fyrir 18 ára aldurinn er Lexi Thompson og henni tókst aðeins einu sinni að gera það sem Lydiu hefir tekist 6 sinnum þ.e. að sigra á LPGA fyrir 18 ára aldurinn, s.s. mörgum er í fersku minni. Lexi sigraði á Navistar LPGA Classic 2011, en þá var hún aðeins 16 ára 7 mánaða og 8 daga.
Lydia var yngri en Lexi í tvö skipti þegar hún sigraði á LPGA. Hún var aðeins 15 ára 4 mánaða og 3 daga þegar hún sigraði á CN Canadian Women´s Open í fyrra skiptið (yngsta allra til að sigra á LPGA) og hún var 16 ára 4 mánaða og 1 dags ung þegar hún varði titil sinn á CN Canadian Women´s Open.
Já, það er langt því frá að Lydia sé að verja titil í fyrsta sinn á LPGA nú um helgina, henni hefir þegar tekist það fyrir 18 ára aldurinn … en þetta er í fyrsta sinn, sem hún á færi á því sem atvinnumaður því í það skipti sem henni tókst að verja titil sinn á LPGA var Lydia Ko enn áhugamaður.
Þess mætti í lokin geta að takist Lydiu Ko ekki að verja fyrsta titil sinn sem atvinnumaður á LPGA nú um helgina á hún 2 aðra sjénsa til að gera svo á þessu ári þ.e. á:
1 Maraþon Classic, en Lydia var 17 ára 2 mánaða og 26 daga ung þegar hún sigraði á því móti 20. júlí 2014
2 CME Group Tour Classic, en Lydia var 17 ára 6 mánaða og 30 daga þegar hún sigraði í því móti 23. nóvember 2014.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
