Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 20. 2015 | 20:00

Vel heppnaður golfskóli á Costa Ballena að baki!

4. árgangur golfkennaraskólans stóð fyrir golfskóla á Costa Ballena á Spáni daganna 12. – 19. apríl.

Hátt í 50 þátttakendur voru í golfskólanum og var mikil ánægja með ferðina.

11 kennaranemar sáu um skipulagningu ferðarinnar og golfskólans undir handleiðslu PGA kennaranna Magnúsar Birgissonar, Derrick Moore og Arnars Más Ólafssonar.

Í ferðinni var skipulagður golfskóli á milli klukkan 9-12 fimm daga vikunnar.

Einnig voru haldin hin ýmsu golfmót ásamt glæsilegu lokahófi.

Það voru því hressir og kátir kylfingar sem héldu heim á leið í dag eftir frábæra viku.