Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2015 | 20:00

PGA: Jim Furyk sigraði á RBC Heritage e. bráðabana við Kisner

Það var nr. 10 á heimslistanum Jim Furyk sem sigraði nú í kvöld á RBC Heritage mótinu í Harbour Town GL á Hilton Head í Suður-Karólínu.

Sigurinn kom eftir bráðabana við Kevin Kisner, en báðir voru þeir jafnir eftir 72 holur, léku báðir á samtals 18 undir pari, 266 höggum; Furyk (71 64 68 63) og Kisner (68 67 67 64).

Hinn 21 árs Troy Merritt sem búinn var að leiða allt mótið varð í 3. sæti eftir enn einn hring upp á 69, sem dugði ekki á móti lágum lokahringjum Furyk upp á 63 og Kisner upp á 64. Hann gerði ekkert rangt; Furyk og Kisner voru einfaldlega á lægra skori.

Það varð að koma til bráðabana milli Furyk og Kisner og var par-4 18. holan fyrst spiluð og fengu báðir par.  Úrslitin réðust á 2. holu bráðabanans, par-3 17. holunni, en þar var Furyk með fugl en Kisner tapaði á pari!

Masters meistarinn nýbakaði Jordan Spieth varð T-11 á 10 undir pari.

Til þess að sjá lokastöðuna í heild á RBC Heritage SMELLIÐ HÉR: