Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2015 | 12:00

Evróputúrinn: Amphibarnrat sigraði á Shenzhen International í Kína

Það var Kiradech Amphibarnrat, sem stóð uppi sem sigurvegari á Shenzhen International í Kína nú fyrr í morgun.  Hann þurfti á erni að halda á 17. holu til þess að tryggja sig í bráðabana og honum tókst einmitt það

Þegar búið var að spila 72 holur voru Kiradech Amphibarnrat og heimamaðurinn Hao-tong Li frá Kína efstir og jafnir – báðir búnir að spila á 12 undir pari 276 höggum; Amphibarnrat (67 69 68 72) og Li á (71 73 65 67).

Það varð því að koma umspils milli þeirra þar sem Amphibarnrat hafði betur þegar á par-4 1. holunni þar sem hann fékk fugl en Li tapaði á pari.  Amphibarnrat er aðeins 2. kylfingurinn frá Thaílandi til þess að sigra oftar en 1 sinni á móti Evróputúrsins.

Bubba Watson, sem var hæst rankaði kylfingur mótsins (í 4. sæti heimslistans) lauk keppni T-29 á samtals 5 undir pari eða 7 höggum á eftir þeim Amphibarnrat og Li.  Hann átti hins vegar glæsilegan lokahring upp á 65 högg.

Til þess að sjá lokastöðuna í Shenzhen International SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta lokahringsins á Shenzhen International SMELLIÐ HÉR: