Ragnar Már Garðarsson, GKG, sigurvegari 1. móts Eimskipsmótaraðarinnar 2014, Nettó-mótsins. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2015 | 14:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már og McNeese urðu í 6. sæti í N-Karólínu

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese luku keppni á Irish Creek Collegiate, en mótið fór fram þann 11.-12. apríl s.l. í Kannapolis, Norður-Karólínu.

Þátttakendur voru 82 frá 15 háskólum.

Ragnar Már lék á samtals 7 undir pari, 209 höggum (71 68 70) og átti m.a. glæsihring, á seinni hring fyrri dags þegar hann lék á 4 undir pari, 68 höggum!!!

Ragnar Már varð T-20 þ.e. deildi 20. sætinu m.a. með liðsfélaga sínum, Martin Erikson, en þeir léku báðir á  216 höggum; Ragnar Már (74 72 70) og Erikson á (75 70 71)

McNeese lauk keppni í 6. sæti í liðakeppninni og áttu Erikson og Ragnar Már aðallega heiðurinn af þeim sigri.

Til þess að sjá lokastöðuna á Irish Creek Collegiate SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Ragnars Más og McNeese State er í Charlotte, N-Karólínu 20. apríl n.k.