Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2015 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf María Einarsdóttir – 9. apríl 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Ólöf María Einarsdóttir. Hún er fædd 9. apríl 1999 og á því 16 ára afmæli í dag. Ólöf María er í Golfklúbbnum Hamar á Dalvík (GHD).

Árið 2013 varð Ólöf María Íslandsmeistari bæði í holukeppni og höggleik 14 ára og yngri stelpna. Einnig vakti hún athygli það ár fyrir að fara tvívegis holu í höggi með nokkurra vikna millibili – afrekaði sem sagt það sem sumir ná ekki á allri golfævi sinni!!!!

Ólöf María Einarsdóttir, GHD fór tvisvar sinnum holu í höggi 2013.  Glæsilegt hjá þessari 14 ára stelpu! Mynd: Örnólfur Aðalsteinsson

Ólöf María Einarsdóttir, GHD fór tvisvar sinnum holu í höggi 2013. Glæsilegt hjá þessari 14 ára stelpu! Mynd: Örnólfur Aðalsteinsson

Árið 2014 var Ólöfu Maríu frábært í golfinu.

Hún er Íslandsmeistari í holukeppni 2. árið í röð, nú í flokki 15-16 ára, sigraði í 4 mótum Íslandsbankamótaraðarinnar og er stigameistari GSÍ 2014 í telpnaflokki.  Eins sigraði Ólöf María í Unglingameistaramóti UMSÍ í telpuflokki í golfi.

Ólöf María stóð sig vel á Junior Open, sem hún og Arnór Snær Guðmundsson, klúbbfélagi hennar, tóku þátt í fyrir Íslands hönd, en það fór fran á West Lancashire golfvellinum rétt hjá Hoylake, Englandi í júlí 2014; en bæði komust í gegnum niðurskurð.

Hún hefir einnig hlotið fjölda viðurkenninga er m.a. Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2014 og íþróttamaður UMSE.

Fyrir nokkru tók Golf 1 viðtal við Ólöfu Maríu sem sjá má með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

1-a-om
Ólöf María (Innilega til hamingju með 16 ára afmælið!!! 🙂 )
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Seve Ballesteros, f. 9. apríl 1957 – d. 7. maí 2011 (hefði orðið 58 ára í dag); Helen Alfredson, 9. apríl 1965 (50 ára stórafmæli); Hörður Hinrik Arnarson, GK, 9. apríl 1967 (48 ára); Elías Víðisson, GÞH, 9. apríl 1976 (39 ára); Morten Örum Madsen, 9. apríl 1988 (27 ára) …. og…..

Þórunn Einarsdóttir

F. 9. apríl 1959 (56 ára)

Valgerður Pálsdóttir

F. 9. apríl 1961 (54 ára)

Ingibjörg Birgisdóttir

F. 9. apríl 1966 (49 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is