Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2015 | 09:00

The Masters 2015: Niall Horan var kaddý Rory

Niall Horan úr Boys bandinu One Direction, tók við af Caroline Wozniacki, sem kylfusveinn Rory í par-3 keppninni, sem fram fór í gær.

Fyrir þá sem ekki þekkja til Niall Horan eða hljómsveitarinnar One Direction þá er hér myndskeið af einu vinsælasta lagi þeirra: „What makes you beautiful“  Til að sjá SMELLIÐ HÉR:  og öðru lagi „Story of my life“ – Til að sjá SMELLIÐ HÉR:  sem allir eru eflaust búnir að heyra milljón sinnum í útvarpinu.

Horan er írskur eins og Rory.

Hann er vanur að koma fram fyrir milljónum, en viðurkenndi að hann hefði verið taugaóstyrkur þarna sem kaddý Rory.

Horan stóð sig vel og þurfti ekki að lita hárið á sér bleikt eins og Caroline gerði í fyrra – menn fylktust að til þess að fá eiginhandaráritanir hjá kaddýnum og hann vakti jafnvel enn meiri athygli en nr. 1.

Horan sagði um kylfuberastarf sitt fyrir Rory: „Þetta er ansi stór viðburður fyrir nr. 1 á heimslistanum og að landi minn skuli biðja mig um þetta er ansi sérstakt. Þessi par-3 keppni er mikil hefð hér á Augusta – þannig að fyrir mig að vera hluti af svona stórri viku fyrir Rory er bara heiður.“